top of page

 ALLIR FÉLAGSMENN Í FLÍ GETA GERST AÐILAR AÐ BHM

 

Aðild að BHM gerir félagsmönnum FLÍ kleift að afla sér réttinda í sjúkrasjóði, orlofs og símenntunarsjóðum BHM.

                              

Með þvi að greiða til BHM getur þú sótt um styrki fyrir:

  • Líkamsrækt

  • Meðferð á líkama og sál

  • Gleraugu og augnaaðgerðir

  • Heyrnatæki

  • Tannviðgerðir

  • Fæðingastyrk

  • Tæknifrjóvgun

  • Sjúkradagpeningar

  • Endurhæfing

  • Starfstengd áföll eða óvænt starfslok

  • Ferðastyrk

 

  • Sem félagi í BHM getur þú líka leigt orlofshús og íbúðir hér á landi og erlendis og þú getur fengið afsláttarbréf fyrir flug og gistingu, útilegukort, veiðikort og golfkort.

 

Þar sem sjálfstætt starfandi listamenn (einyrkjar) eru ekki með föst mánaðarlaun er hægt að miða við lágmarkslaun BHM, kr. 300.00.- sem eru líklega á svipuðu róli og listamannalaun. Einnig er hægt að miða laun við þá lágmarksupphæð sem þarf að greiða til BHM á mánuði, sem er kr. 3.000.- er þá miðað við kr. 180.000.- laun á mánuði. Með aðild að BHM tekur félagsmaður ákvörðun um að gerast aðili að sjúkra-, orlofs- og starfsmenntasjóðum BHM og þarf þá að greiða iðgjöld til BHM mánaðarlega (fyrir 10. hvers mánaðar) til að koma í veg fyrir réttindamissi.

 

Á vefsvæði BHM má finna launagreiðendavef

http://www.bhm.is/kaup-og-kjor/fyrir-launagreidendur/ ) 

Sjálfstætt starfandi félagsmaður er í þessu samhengi bæði launagreiðandi og launþegi.

 

Mikilvægt er að rétt stéttarfélagsnúmer (957) og heiti stéttarfélags (FLÍ) komi fram á skilagreinum.

 

FLÍ mun hjálpa til við að fylla út skilagreinar fyrst um sinn, eða þangað til allir eru komnir með það á hreint.

Hvað ber að greiða til BHM: 

 

Ef miðað er við laun að fjárhæð kr. 180.000.- :

  • Félagsgjald: 1,5% af heildarlaunum,           kr.  2700

  • Orlofssjóður: 0,25% af heildarlaunum,         kr.  450

  • Sjúkrasjóður: 1% af heildarlaunum,             kr. 1.800

  • Starfsmenntunarsjóður: 0,22% af heildarlaunum, kr.  396 

  • FLÍ félagar greiða EKKI í starfsþróunarsetur háskólamanna.

 

Iðgjöld sem ber að greiða mánaðarlega til BHM eru þá kr. 5,346. 

 

bottom of page